Um hópinn
Haltu áfram fjallaævintýrinu með FÍ Alla leið – haust! Þú styrkir þrek, færni og sjálfstraust í fjölbreyttum göngum um einstaka náttúru landsins, í góðum félagsskap og undir leiðsögn reyndra fararstjóra.
Gönguhópurinn heldur áfram í haust með fjölbreyttri fjallgöngudagskrá sem hefst 29. ágúst og lýkur í lok nóvember. FÍ Alla leið er öllum opið, jafnt þeim sem hafa áður tekið þátt í fjallaverkefnum Ferðafélags Íslands sem og þeim sem vilja prófa þessa frábæru leið til að hreyfa sig, stunda útivist, njóta náttúrunnar og kynnast skemmtilegum fjallavinum.
Á dagskránni eru 14 fjallgöngur, sex kvöldgöngur sem farnar eru á mánudögum og átta dagsferðir sem verða um helgar. Í þessu haustverkefni verður farin helgarferð í Þakgil og þá genginn hringur inn að Kötlujökli og um Huldufjöll á laugardeginum, á Hjörleifshöfða og Pétursey á sunnudeginum.
Verð: 77.000 kr. fyrir félagsfólk. 86.900 kr. með árgjaldi FÍ 2026 innifalið í verði. Makar/sambýlisfólk greiða fjölskylduaðild, hálft árgjald.
Afbókunarskilmálar: Afbókun eftir að verkefni er hafið — engin endurgreiðsla. Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að hætta við, fresta eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna.