Gönguhópar FÍ 2026

Leggðu af stað með hópnum

Skipulagðir gönguhópar með reyndum leiðbeinanda — vor, haust eða allt árið. Greiddu einu sinni og gengðu allt tímabilið.

5+ Hópar í boði
Vikulega Göngur með leiðbeinanda
Öll stig Frá byrjendum til reyndra

Gönguhópar FÍ eru áskriftarforrit þar sem þú kaupir þér inn í hóp fyrir tímabilið. Hóparnir hittast vikulega undir leiðsögn reynds leiðbeinanda og fara í fjölbreyttar göngur á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Verðið nær yfir allt tímabilið — engar sérgreiðslur fyrir hverja ferð.

Þetta er frábær leið til að kynna sér náttúru Íslands, hitta nýja vini og vera í góðu líkamlegu ástandi. Allir eru velkomnir — óháð reynslu eða líkamlegri getu.

Vor 2026

4 hópar
FÍ Tifað á tinda Vor — BIÐLISTI
Vor Biðlisti

FÍ Tifað á tinda Vor — BIÐLISTI

Gönguhópur þar sem gengið er rólega á aðgengileg og auðveld fjöll. Lögð er áhersla á hæggöngu og að halda hópinn. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Hæggöngur úti í náttúrunni njóta vaxandi vinsælda og rannsóknir sýna að með því að ferðast rólega um úti í náttúrunni eykur það upplifun þátttakenda, dregur úr streitu og hefur margvísleg jákvæð áhrif á líkama og sál. Göngurnar eru vikulega og enda í maí með helgarferð og útskrift þar sem gengið verður um þriðja hluta af Kóngsvegi til Þingvalla og Laugarvatnsfjall toppað.

Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir Fullur hópur
68.000 kr. félagsverð / tímabil
Setja mig á biðlista
FÍ Alla leið Vor — BIÐLISTI
Vor Biðlisti

FÍ Alla leið Vor — BIÐLISTI

Árið 2026 verður þrettánda ár Alla leið. Megin markmið gönguhópsins er að undirbúa þátttakendur undir langa og krefjandi jöklagöngu að vori. Undirbúningurinn er í grunninn þríþættur: Að byggja upp þrek og styrk með stigmagnandi hætti, að læra að ferðast, nærast og búa sig á fjöllum með öruggum hætti, og að öðlast þá tækni sem þarf til að ferðast um jökla eða fjöll í vetraraðstæðum. Vordagskránni lýkur með göngu á einn af hæstu tindum landsins: Þverártindsegg, Sveinstindur, Eyjafjallajökull, Hvannadalshnúkur, Hrútsfjallstindar eða Birnudalstindur.

Hjalti Björnsson Fullur hópur
72.000 kr. félagsverð / tímabil
Setja mig á biðlista
FÍ Gönguferðir eldri og heldri - Vor 2026
Vor

FÍ Gönguferðir eldri og heldri - Vor 2026

Gönguhópurinn FÍ Eldri og heldri. Ferðafélag Íslands heldur úti gönguferðum fyrir eldri og heldri félaga FÍ. Fátt er eins heilsubætandi og góður göngutúr nema þá kannski göngutúr í skemmtilegum hópi. Göngurnar hefjast 16. apríl og standa til 8. júní og eru við allra hæfi. Gengið verður tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum. Göngurnar hefjast kl. 11 á morgnana og eru um 60-90 mínútna langar. Gengið verður um ýmis hverfi á Stór-Reykjavíkursvæðinu.

Ólöf Sigurðardóttir 40 pláss laus
14.900 kr. félagsverð / tímabil
Skrá mig

Haust 2026

2 hópar
FÍ Kvennakraftur Haust 2026
Haust

FÍ Kvennakraftur Haust 2026

Ertu til í að hreyfa þig, hlæja og njóta útiveru í góðum félagsskap? Kvennakraftur er gönguhópur fyrir konur sem vilja stíga sín fyrstu skref í fjallgöngum eða einfaldlega njóta náttúrunnar í afslöppuðu og jákvæðu umhverfi. Hópurinn hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja taka þátt í rólegum, en fjölbreyttum göngum í fallegu umhverfi. Flestar göngurnar okkar eru með yfir 200 metra hækkun, en einnig eru á dagskrá nokkrar léttari láglendisgöngur. Kringum höfuðborgarsvæðið leynast ótrúlegar náttúruperlur – og við ætlum að skoða og sigrast á nokkrum þeirra saman. Gengið verður annað hvert þriðjudagskvöld kl.18 og annan hvern laugardag kl.10 í sömu viku.

Agnes Ósk Sigmundardóttir og Steinunn Leifsdóttir. Aðstoðar: Katrín Helgadóttir 30 pláss laus
67.000 kr. félagsverð / tímabil
Skrá mig
FÍ Alla leið - Haust 2026
Haust

FÍ Alla leið - Haust 2026

Haltu áfram fjallaævintýrinu með FÍ Alla leið – haust! Þú styrkir þrek, færni og sjálfstraust í fjölbreyttum göngum um einstaka náttúru landsins, í góðum félagsskap og undir leiðsögn reyndra fararstjóra. Gönguhópurinn heldur áfram í haust með fjölbreyttri fjallgöngudagskrá sem hefst 29. ágúst og lýkur í lok nóvember. FÍ Alla leið er öllum opið, jafnt þeim sem hafa áður tekið þátt í fjallaverkefnum Ferðafélags Íslands sem og þeim sem vilja prófa þessa frábæru leið til að hreyfa sig, stunda útivist, njóta náttúrunnar og kynnast skemmtilegum fjallavinum. Á dagskránni eru 14 fjallgöngur, sex kvöldgöngur sem farnar eru á mánudögum og átta dagsferðir sem verða um helgar. Í þessu haustverkefni verður farin helgarferð í Þakgil og þá genginn hringur inn að Kötlujökli og um Huldufjöll á laugardeginum, á Hjörleifshöfða og Pétursey á sunnudeginum. Verð: 77.000 kr. fyrir félagsfólk. 86.900 kr. með árgjaldi FÍ 2026 innifalið í verði. Makar/sambýlisfólk greiða fjölskylduaðild, hálft árgjald. Afbókunarskilmálar: Afbókun eftir að verkefni er hafið — engin endurgreiðsla. Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að hætta við, fresta eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna.

Hjalti Björnsson. Aðstoðar: Auður Elfa Kjartansdóttir, Guðjón Benfield, Ingibjörg Jónsdóttir, Bjarni Már Gylfason 30 pláss laus
77.000 kr. félagsverð / tímabil
86.900 kr. almennt
Skrá mig

Allt árið

6 hópar
FÍ Þrautseigur — Tvö fjöll á mánuði 2026
Allt árið

FÍ Þrautseigur — Tvö fjöll á mánuði 2026

Fyrir þá sem vilja njóta útiveru í fjölbreyttu íslensku umhverfi, ganga bæði á láglendi og hálendi, kynnast nýjum göngufélögum og upplifa áskoranir, fegurð og ævintýri íslenskrar náttúru. Göngudagskrá verkefnisins hefst 17. janúar og lýkur í byrjun desember. Farnar verða tvær ferðir í mánuði, alltaf á laugardegi, auk tveggja helgarferða í Skagafjörð og Húnavatnssýslu.

Sofia Jóhannsdóttir og Pétur Bjarnason 1 pláss laus
Skráningu lokið
FÍ Þjóðleiðir 2026
Allt árið

FÍ Þjóðleiðir 2026

Í fótspor fornferðra á fornum slóðum. Komdu með í göngur þar sem fortíð og nútíð renna saman. Upplifðu landið okkar eins og það var fetað um aldir. Frá landnámi hafa þjóðleiðir myndast á milli landshluta og orðið eins konar æðakerfi um landið. Þessar fornu gönguleiðir hafa í sumum tilfellum staðið óbreyttar í hundruð ára og geyma ómetanlegar sögur um líf og ferðir fólks fyrr á tímum. Gengið er einn sunnudagsmorgun í mánuði. Um miðjan ágúst verður helgarferð, þar sem við göngum Kjalveg hinn forna.

1 pláss laus
Skráningu lokið
FÍ Léttfeti — Eitt fjall á mánuði 2026
Allt árið

FÍ Léttfeti — Eitt fjall á mánuði 2026

Frábært tækifæri til að kynnast nýjum fjallavinum, njóta útivistar í góðum félagskap í fallegri íslenskri náttúru. Hópurinn hentar þeim sem hafa gaman af útivist og hreyfingu en vilja ekki endilega sækja mikið á brattann, en ráða þó við miðlungs erfiðar göngur á lægri fell. Gengin er ein ganga í mánuði og alltaf á laugardegi. Farnar verða 10 dagsferðir og ein helgarferð í júní.

Sofia Jóhannsdóttir og Pétur Bjarnason. Aðstoðar: Höskuldur Björnsson, Guðný Sigurðardóttir, Örvar Aðalsteinsson, Sigrún Konráðsdóttir, Gunnar Sigursson, Þóra Jóhanna Hjaltadóttir, Ævar Aðalsteinsson 1 pláss laus
Skráningu lokið
FÍ Fótfrár 2026
Allt árið

FÍ Fótfrár 2026

Hópur sem hentar þeim sem hafa gaman af útivist og hreyfingu og að sækja á brattann. Gott er að einhver reynsla af fjallgöngum sé til staðar og þol nokkuð gott. Göngudagskrá verkefnisins hefst 17. janúar og lýkur 28. nóvember. Gengin er ein ganga í mánuði og alltaf á laugardegi. Farnar verða 10 dagsferðir og ein helgarferð í september í Húnavatnssýslu.

Sofia Jóhannsdóttir og Pétur Bjarnason. Aðstoðar: Höskuldur Björnsson, Guðný Sigurðardóttir, Örvar Aðalsteinsson, Sigrún Konráðsdóttir, Gunnar Sigursson, Þóra Jóhanna Hjaltadóttir, Ævar Aðalsteinsson 1 pláss laus
Skráningu lokið