Um hópinn
Árið 2026 verður þrettánda ár Alla leið. Megin markmið gönguhópsins er að undirbúa þátttakendur undir langa og krefjandi jöklagöngu að vori.
Undirbúningurinn er í grunninn þríþættur: Að byggja upp þrek og styrk með stigmagnandi hætti, að læra að ferðast, nærast og búa sig á fjöllum með öruggum hætti, og að öðlast þá tækni sem þarf til að ferðast um jökla eða fjöll í vetraraðstæðum.
Vordagskránni lýkur með göngu á einn af hæstu tindum landsins: Þverártindsegg, Sveinstindur, Eyjafjallajökull, Hvannadalshnúkur, Hrútsfjallstindar eða Birnudalstindur.
Leiðbeinendur
Hjalti Björnsson Umsjón