FÍ Kvennakraftur Haust 2026

FÍ Kvennakraftur Haust 2026

Haust 2026 ●●○○

Um hópinn

Ertu til í að hreyfa þig, hlæja og njóta útiveru í góðum félagsskap?

Kvennakraftur er gönguhópur fyrir konur sem vilja stíga sín fyrstu skref í fjallgöngum eða einfaldlega njóta náttúrunnar í afslöppuðu og jákvæðu umhverfi. Hópurinn hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja taka þátt í rólegum, en fjölbreyttum göngum í fallegu umhverfi.

Flestar göngurnar okkar eru með yfir 200 metra hækkun, en einnig eru á dagskrá nokkrar léttari láglendisgöngur. Kringum höfuðborgarsvæðið leynast ótrúlegar náttúruperlur – og við ætlum að skoða og sigrast á nokkrum þeirra saman.

Gengið verður annað hvert þriðjudagskvöld kl.18 og annan hvern laugardag kl.10 í sömu viku.

Leiðbeinendur

Agnes Ósk Sigmundardóttir Umsjón
Steinunn Leifsdóttir Umsjón
Katrín Helgadóttir Aðstoðar