FÍ Tifað á tinda Vor — BIÐLISTI

FÍ Tifað á tinda Vor — BIÐLISTI

Vor 2026 ●●○○ Biðlisti

Um hópinn

Gönguhópur þar sem gengið er rólega á aðgengileg og auðveld fjöll. Lögð er áhersla á hæggöngu og að halda hópinn. Einn fyrir alla og allir fyrir einn.

Hæggöngur úti í náttúrunni njóta vaxandi vinsælda og rannsóknir sýna að með því að ferðast rólega um úti í náttúrunni eykur það upplifun þátttakenda, dregur úr streitu og hefur margvísleg jákvæð áhrif á líkama og sál.

Göngurnar eru vikulega og enda í maí með helgarferð og útskrift þar sem gengið verður um þriðja hluta af Kóngsvegi til Þingvalla og Laugarvatnsfjall toppað.

Leiðbeinendur

Reynir Traustason Umsjón
Guðrún Gunnsteinsdóttir Umsjón